Íslandsvinurinn Tom Hanks
Í gærkvöldi, fimmtudaginn 13. maí, fórum við að borða á ítölskum stað með sænska nemandanum Gustaf Östner sem er á Keldum um þessar mundir þótt hann sé í námi í Lundi. Það væri svo sem ekki í frásögur færandi að við fórum út að borða ef ég hefði ekki lent í því að Visa kortinu mínu var hafnað þegar ég ætlaði að nota það til að borga með. Sem betur fór var ég með bæði Mastercard og seðla svo að ég lenti ekki í vandræðum en ég varð samt fokreiður af tilhugsuninni um hvað hefði getað gerst ef ég hefði verið einn á ferð með ekkert nema Visa kortið. Ætli þeir hefðu ekki kallað til lögregluna sem hefði leitt mig út í handjárnum? Óskemmtileg tilhugsun.
Annar dagur ráðstefnunnar var í dag, föstudag. Ég rölti á ráðstefnustaðinn með Ástu en síðan átti ég stefnumót við Sigurgeir Orra, sem var með námskeið í handritaskrifum sem ég sótti fyrir einu og hálfu ári. Kona hans vinnur hjá stoðtækjafyrirtækinu Össuri hér í Los Angeles en hann er aðallega í handritaskrifum. Við fengum okkur snæðing í hádeginu og síðan ókum við sem leið lá til Paramount Studios, um hálftíma akstur frá hótelinu. Þar fórum við í 2 klst ferð um stúdíóið með leiðsögumanni. Þetta var mjög áhugavert, ekki síst að sjá hvar þeir hafa tekið upp ýmsar myndir sem gerast á sjó eða vatni, t.d. þar sem Rauðahafið opnaðist fyrir Móses. Undir venjulegum kringumstæðum er þetta bílastæði!
Hápunkturinn var þegar við hittum Tom Hanks. Þar sem við stóðum og vorum á hlusta á leiðsögumanninn kom Tom allt í einu hjólandi á reiðhjóli og stoppaði hjá okkur.
„You guys seem to be from out of town,“ sagði hann. „Where are you from?“
Samferðamenn mínir virtust vera í hálfgerðu losti og orðlausir svo að ég varð fyrstur til að svara og sagði að við værum frá Íslandi.
„Iceland!“ sagði hann. „A beautiful place!“
„Belgium“ sagði þá einn samferðamaðurinn.
„Belgium?“ sagði Tom. „Also a very beautiful place.“ Með það óskaði hann okkur góðrar skemmtunar, kvaddi og hjólaði á braut. Hann var klæddur í fatnað sem var í tísku sennilega fyrir ca 100 árum. Hann er að „produceara“ mynd sem hann bæði leikstýrir og leikur í.
Alls tók þessi ferð um Paramount Studios tvær klukkustundir. Orri ók mér aftur á hótelið og átti svo klukkustundar ferð fyrir höndum heim til sín en hann býr í Laguna Beach í suðurjaðri Los Angeles svæðisins.
Í kvöld verður „banquet“ á ráðstefnunni og ég fæ að fara með!
Lifið heil!

2 Comments:
Sæl bæði, ofsalega gaman að lesa bloggið eins og alltaf.
Búin að prenta það og fer með til mömmu á morgun.
Sumarverður hér í dag.
Fórum í 2ja tíma gngu og svo í nýju sundlaugina á Álftanesi.
Frábær dagur.
Hafið þið áhuga á að fá páskaliljulauka í garðinn eða bústaðinn ókeypis??
Inga
það er ekki lítið flott að hafa hitt Tom Hanks - og hann semsé komið til Íslands? eða bara kurteis ..
gaman að fylgjast með
bestu kveðjur frá öskufríum Vestfjörðum
Ester og co
Post a Comment
<< Home