Thursday, April 17, 2008

Þar kom að því!

Fimmtudagur, 17. apríl 2008

Þar kom að því: Þrumuveður og haglél í Barcelona. Við vöknuðum í rigningu og þótt spáð hafi verið skúrum rigndi samfellt fram yfir hádegi. Þegar klukkan var farin að ganga í eitt ákváðum við að bíða ekki lengur og fórum út. Við vorum viðbúin svona veðri og fórum í gönguskóm og regnheldum úlpum, auk regnhlífar. Gengum í áttina að höfninni en stoppuðum á leiðinni og fengum okkur hádegisverð á stað sem reyndist vera rekinn af Finna. Hann hafði opnað staðinn fyrir viku síðan. Maturinn var reyndar svona og svona – höfum fengið hann betri. En þegar við vorum búin að borða var sólin einmitt um það bil að byrja að brjótast í gegnum skýin og það hlýnaði hratt. Við fórum niður á höfnina og skoðuðum allar snekkjurnar sem þar eru – einhverjir eiga greinilega peninga!

Ákváðum að skoða sædýrasafnið. Það minnti dálítið á safnið í Sydney en hið síðarnefnda var reyndar töluvert flottara, auk þess sem ekki var eins þröngt um mann þar og einnig minnir okkur að þar hafi verið gert meira af því að fræða gestina. Á meðan við vorum þarna kom önnur skúr en svo stytti upp á ný og við komum okkur af stað áleiðis heim á hótel.

Og þar kom að því: Ásta kynnti mig fyrir þeim hluta arabahverfisins þar sem mellurnar halda sig. Ókei, jæja, við ákváðum að ganga í gegnum syðri hluta arabahverfisins og lentum þar á mellugötu. Það verður nú að segjast eins og er: Ekki voru þetta fegurstu konurnar sem ég hef séð í þessari borg. Og ekki voru það heldur gæfulegustu karmennirnar sem þar hengu og mændu á gleðikonurnar, meðan þeir voru að gera það upp við sig hvort þeir ættu að eiga við þær viðskipti. Ég veit ekki með Ástu en ég var hálffeginn þegar ég var kominn aftur út úr þessu hverfi.

Þegar þetta er ritað virðist síðasta skúr vera um það bil að hverfa á haf út. Enn má sjá falleg þrumuský á himni en það er lengra á milli eldinganna og jafnvel má sjá sólarglætu á húsinu handan götunnar. Það styttist því í að við höldum á ný út í borgina til að finna okkur stað að borða á hinstu kvöldmáltíðina í þessari ágætu borg.

Viðbót (þar sem lélegt kerfi leyfði ekki að pósturinn kæmist á netið): Fórum út að borða á veitingastað sem heitir 4 kettir og er besti staðurinn sem við höfum farið á til þessa. Á heimleiðinni stoppuðum við á bar sem er tengdur hótelinu þar sem Ásta og Ragnhildur bjuggu fyrir fáeinum árum. Fengum okkur margarítur þar. Þetta er sennilega einn af innan við 5% bara þar sem hægt er að fá sér kokteila á borð við margarítur, miðað við okkar reynslu. Í ljósi þess að hér í borg munu vera um 25 þúsund barir eru þetta rúmlega þúsund barir en við höfum ekki haft tíma til að prófa þá alla!

Á morgun þurfum við að tékka út um hádegi en flugið er ekki fyrr en seint um kvöldið og lending á Keflavíkurflugvelli áætluð um kl 2:30 aðfaranótt laugardags ef ég man rétt.

Lifið heil!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home