Thursday, May 20, 2010

Meiri gestrisni

Stutt blog að þessu sinni. Skruppum í morgun út á Granville Island með smábáti. Þarna er markaður sem við skoðuðum og keyptum eitthvað smáræði. Síðan aftur heim á hótelið því að þangað ætluðu Alix og John að sækja okkur kl. 13:00. Það stóð auðvitað heima.

Við skoðuðum ýmsa skemmtilega staði með þeim hjónum, fengum okkur göngutúr á bökkum Fraser ár og gengum í trjátoppum eftir hengibrúm. Síðan heim til þeirra hjóna þar sem dætur þeirra tvær, Kristin og Lisa hittu okkur. Kristin er eldri, 53 ára, en Lisa er fimmtug. Mjög gaman að hitta þær systur.

Eftir það buðu þau hjón okkur út að borða á mjög skemmtilegan stað þar sem sér vel yfir borgina. Frábær matur, frábært útsýni, frábær félagsskapur.

Þau keyrðu okkur síðan heim þar sem við kvöddumst með miklum virktum. Það verður erfitt að endurgreiða þeim alla þessa gestrisni. Mig hefði aldrei grunað að þau mundu vera svona elskuleg við okkur! Þau tóku því ekki ótrúlega að þau mundu koma til Íslands einhvern tíma í framtíðinni. Þá gefst vonandi tækifæri til að sýna þeim ámóta gestrisni.

Við höfum verið hreint ótrúlega heppin með veður. Hitinn hefur ekki verið hár, 12-14°C en mestallan tímann hefur verið sólskin sem er víst ekki nokkuð sem hægt er að treysa á hér um slóðir.

Á morgun höldum við aftur til Mt. Vernon þar sem við verðum fram á þriðjudag.

Lifið heil!

Wednesday, May 19, 2010

Gestrisni og gestrisni

Langt síðan ég skrifaði síðast. Við höfum verið svo upptekin af annarra manna gestrisni að það hálfa væri nóg.

Við flugum frá Los Angeles til Seattle eftir hádegi á laugardegi 15. maí, lentum rétt eftir kl. 18:00. Anne og Scott tóku á móti okkur og síðan var ekið norður á bóginn, áleiðis til Mt. Vernon. Stoppuðum við norðurendann á Lake Washington þar sem við fengum okkur göngutúr í gegnum afskaplega fallegan trjágarð (arboretum). Síðan fengum við okkur að borða á taílenskum stað áður en haldið var áfram heim til þeirra. Þangað komum við rúmlega kl. 22:00. Þar tók Stanley á móti okkur. Stanley er hundurinn þeirra sem talinn er vera ca 6 ára en hann gæti þess vegna verið mun eldri. Hann er afskaplega hægfara hundur sem þau björguðu úr „Hundaholti“. Hann er greinilega blendingur, sennilega aðallega Labrador en líklega er einhver blóðhundur í honum. Hann er afskaplega „ræðinn“, lætur heyra í sér ef hann hefur eitthvað að segja en þegir þess á milli. Það var dálítið fróðlegt að sjá hvernig hann horfir alltaf í augun á manni og reyndar öllum í kringum hann, eins og hann sé sífellt að reyna að ráða í augnaráð manns.

Fengum okkur drykk fyrir svefninn og fórum í rúmið um miðnætti sem er sennilega seinna en Anne og Scott hafa farið að sofa í mörg ár. Ég vaknaði næstsíðastur, kl. 7:30. Anne, sem okkur skildist að væri venjulega fyrst á fætur, vaknaði ekki fyrr en kl. 8:15, sennilega vegna þess að háttatíminn riðlaðist.

Á sunnudeginum fórum við í langan bíltúr í grenndinni. Stoppuðum við hús sem Richard og Jan (gestgjafar okkar í Costa Rica í fyrra) eiga en þau eru einmitt í Costa Rica núna. Húsið er niðri við sjó og þar söfnuðum við kræklingi og öðuskeljum í fjörunni. Fengum okkur svo nesti á staðnum, brauð, ost, skinku og egg úr hænunum þeirra (þau eru með 2 verpandi hænur og 4 unga sem fara að verpa síðar í sumar). Frábært veður (ég sólbrann á nefinu). Svo heimsóttum við Blake og Bonnie, son og verðandi tengdadóttur Scotts og Önnu. Þau eru að fara að gifta sig 1. ágúst. Þau keyptu nýlega 5 ekrur (2 hektara) lands sem þau ætla að rækta á. Bæði eru í vinnu annars staðar en eyða öllum helgum og kvöldum í að undirbúa landið undir ræktun. Á landinu er kofi sem er svo lítill að ekki þarf leyfi skipulagsyfirvalda fyrir honum og þar búa þau. Þegar við komum voru þau að ganga frá vatnstanki uppi á hæð en þangað dæla þau vatni úr brunni svo að þau geti haft sjálfrennandi vatn án þess að vera með dæluna í gangi í hvert sinn sem þau skrúfa frá krana. Það var stórkostlegt að horfa á þetta samhenta unga fólk sem er að reyna að koma sér fyrir og hefja lífræna ræktun eins smátt og hægt er að hugsa sér.

Um kvöldið fengum við okkur krækling í forrétt og síðan grillað nautakjöt. Fyrr að sofa en á laugardagskvöldið.

Á mánudegi þurfti Anne að vinna fyrir hádegi en Scott tók sér frí þennan dag. Kannski er rétt að segja að hann kom vöktunum sínum þannig fyrir að hann þurfti ekki að vinna þennan dag. Hann er heimilislæknir á nokkurs konar bráðamóttöku. Vaktirnar eru 11 klst og að meðaltali vinnur hann 4 daga í viku. Rétt fyrir hádegi fórum við í göngutúr í skógi þar sem er (var?) mikið hegravarp en fundum ekki varpið. Virðist sem það hafi minnkað mikið því við sáum aðeins einstaka hegra á flugi. Keyptum loks ostrur áður en við hittum Anne og fengum okkur að borða með henni á sjávarréttastað. Síðan fengum við okkur langan göngutúr í skógi þar sem þær fáu moskítóflugur, sem þar búa, ákváðu að spjalla náið við okkur Ástu en létu auðvitað aðra í friði. Frábært veður allan daginn og kvöldið. Hélt áfram að brenna á nefinu.

Um kvöldið var heilmikil veisla heima hjá Anne og Scott þar sem Bonnie og Todd (sem voru með okkur á Osa skaga í Costa Rica í fyrra) og önnur hjón voru boðin líka, 8 manns alls. Mjög skemmtilegt kvöld enda er Todd hrókur alls fagnaðar þar sem hann kemur. Borðuðum krækling, öðuskel, ostrur og lax. Stóðum á blístri á eftir.

Þriðjudagsmorgun 18. maí fór Anne snemma í vinnu en Scott ekki fyrr en kl. 9:30 því hann þurfti að fara til tannlæknis. Við lögðum af stað norður á bóginn stuttu síðar í einum af þremur bílum þeirra, sem þau lánuðu okkur til að aka til Vancouver. Í stuttu máli gekk ferðin vel og við vorum komin á hótelið okkar, Sylvia Hotel í Vancouver, um hádegisbil. Þetta hótel er á besta stað í bænum, í jaðri Stanley Park (fyrir þá sem þekkja til í Vancouver). Fengum heillirigningu á leiðinni en svo stytti smám saman upp og um kvöldið var stórkostlega fallegt veður.

Á hótelherberginu beið okkar sending frá Alix og John Fredickson (frænda mínum og konunni hans). Það var hvítvínsflaska (Chardonnay frá British Columbia), eintak af Lögbergi-Heimskringlu, indíánaútskurður til að hengja á vegg, saladskeið og gaffall úr endurunnu gleri, barmmerki íslensk-kanadíska félagsins, tvenns konar mismunandi barmmerki frá Ólympíuleikunum og tvenns konar kanadískt snakk, að ekki sé nefnt mjög fallegt kort þar sem við vorum boðin velkomin. Ég hringdi strax í þau og þá var ákveðið að þau mundu sækja okkur kl. 10 morguninn eftir og aka með okkur um borgina og borða svo með okkur hádegisverð.

Það sem eftir var dagsins fórum við í langan göngutúr niður í bæ. Ásta fann strigaskó (sem hún keypti) og við fundum líka eitthvað smávegis fyrir væntanlegt barnabarn. Um kvöldð fórum við á veitingastað sem heitir „The Fish House“ í Stanley Park, í göngufjarlægð frá hótelinu, en Alix og John höfðu mælt með því. Mjög góður staður. Fengum okkur svo göngutúr um English Bay sem er hér við hótelið. Þar er búið að koma fyrir röðum af rekaviðadrumbum sem fólk ýmist situr á eða situr upp við og styður bakið við. Mjög skemmtilegt svæði. Frábært veður. Snemma að sofa.

Í morgun, miðvikudag, sóttu Alix og John okkur kl. 10 eins um var rætt. Þau fóru með okkur í skemmtilegan bíltúr um svæðið, meðal annars um háskólasvæðið og í Museum of Archaeology. Síðan í VanDusen Botanical Garden þar sem við borðuðum hádegisverð. Ekki var við það komandi að við fengjum að borga – við værum gestir þeirra! Fengum okkur göngutúr um garðinn – hreint ótrúlegt hvað hægt er að rækta hérna. Hér eru m.a.s. pálmatré! En mest áberandi og fallegt eru samt Himalajarósirnar. Síðan fórum við heim til þeirra. Þau fluttu fyrir nokkrum árum í litla íbúð en hún er á mjög skemmtilegum stað og ekki svo lítil fyrir eldri hjón (þau verða bæði áttræð á næsta ári). Þar varð Alix eftir en John keyrði okkur aftur á hótelið. Vorum komin hingað kl. 16, sex klukkustundum eftir að þau sóttu okkur. Fengum mjög gott veður þótt spáin hafi ekki verið sérlega góð. Um leið og John skilaði okkur í hótelið byrjaði að rigna en það stóð aðeins í rúmar 2 klst og síðan stytti upp. Ágætis veður um kvöldið þótt það væri skýjað.

Þau ætla að sækja okkur kl. 13 á morgun til að sýna okkur meira af borginni og svo munum við borða saman annað kvöld.

Gengum niður í bæ til að borða ― enduðum á víetnömskum stað. Urðum fyrir vonbrigðum en hvorugt okkar hafði borðað víetnamskan mat áður. Nú er klukkan orðin meira en 22 og háttatími nálgast hratt.

Lifið heil!

Friday, May 14, 2010

Íslandsvinurinn Tom Hanks

Í gærkvöldi, fimmtudaginn 13. maí, fórum við að borða á ítölskum stað með sænska nemandanum Gustaf Östner sem er á Keldum um þessar mundir þótt hann sé í námi í Lundi. Það væri svo sem ekki í frásögur færandi að við fórum út að borða ef ég hefði ekki lent í því að Visa kortinu mínu var hafnað þegar ég ætlaði að nota það til að borga með. Sem betur fór var ég með bæði Mastercard og seðla svo að ég lenti ekki í vandræðum en ég varð samt fokreiður af tilhugsuninni um hvað hefði getað gerst ef ég hefði verið einn á ferð með ekkert nema Visa kortið. Ætli þeir hefðu ekki kallað til lögregluna sem hefði leitt mig út í handjárnum? Óskemmtileg tilhugsun.

Annar dagur ráðstefnunnar var í dag, föstudag. Ég rölti á ráðstefnustaðinn með Ástu en síðan átti ég stefnumót við Sigurgeir Orra, sem var með námskeið í handritaskrifum sem ég sótti fyrir einu og hálfu ári. Kona hans vinnur hjá stoðtækjafyrirtækinu Össuri hér í Los Angeles en hann er aðallega í handritaskrifum. Við fengum okkur snæðing í hádeginu og síðan ókum við sem leið lá til Paramount Studios, um hálftíma akstur frá hótelinu. Þar fórum við í 2 klst ferð um stúdíóið með leiðsögumanni. Þetta var mjög áhugavert, ekki síst að sjá hvar þeir hafa tekið upp ýmsar myndir sem gerast á sjó eða vatni, t.d. þar sem Rauðahafið opnaðist fyrir Móses. Undir venjulegum kringumstæðum er þetta bílastæði!

Hápunkturinn var þegar við hittum Tom Hanks. Þar sem við stóðum og vorum á hlusta á leiðsögumanninn kom Tom allt í einu hjólandi á reiðhjóli og stoppaði hjá okkur.

„You guys seem to be from out of town,“ sagði hann. „Where are you from?“

Samferðamenn mínir virtust vera í hálfgerðu losti og orðlausir svo að ég varð fyrstur til að svara og sagði að við værum frá Íslandi.

„Iceland!“ sagði hann. „A beautiful place!“

„Belgium“ sagði þá einn samferðamaðurinn.

„Belgium?“ sagði Tom. „Also a very beautiful place.“ Með það óskaði hann okkur góðrar skemmtunar, kvaddi og hjólaði á braut. Hann var klæddur í fatnað sem var í tísku sennilega fyrir ca 100 árum. Hann er að „produceara“ mynd sem hann bæði leikstýrir og leikur í.

Alls tók þessi ferð um Paramount Studios tvær klukkustundir. Orri ók mér aftur á hótelið og átti svo klukkustundar ferð fyrir höndum heim til sín en hann býr í Laguna Beach í suðurjaðri Los Angeles svæðisins.

Í kvöld verður „banquet“ á ráðstefnunni og ég fæ að fara með!

Lifið heil!

Thursday, May 13, 2010

The Getty Center

Fór í Getty Center í dag. Ég bjóst við að þurfa að taka leigubíl en karlinn í móttökunni benti mér á að ég gæti tekið strætó beint þangað og stoppustöðin væri bara rétt hinum megin við hornið. Þeta væri bara í tveggja mílna fjarlægð og kostaði 1,25 dollara.

Ekki spurning í mínum huga. Fór því út á strætisvagnastöðina. Þegar þangað kom var ég að reyna að átta mig á hvað ég þyrfti að fara fram hjá mörgum stöðvum áður en ég færi úr vagninum. Gat ekki áttað mig á hvað stöðin heitir sem ég var á. Spurði því svarta konu en í ljós kom að hún var líka ferðamaður í bænum og vissi það ekki. Við fórum að spjalla saman. Hún reyndist vera frá Uganda en flutti þaðan fyrir 5 árum og hefur verið að vinna síðan í San Fransisco. Hún sagðist hafa gefist upp á ástandinu í heimalandinu og var afskaplega döpur yfir því. Landið ætti sér enga ytri óvini en þá fyndu menn sér bara innri óvini til að berjast við. Ég nefndi Idi Amin og hún sagði að þótt hann væri frægastur þá hefðu nánast allir verið jafnslæmir sem hefðu verið við stjórnvölinn síðan. Hún hafði bara verið krakki þegar Idi Amin var forseti. Samkvæmt því hefur hún verið komin nokkuð á fertugsaldurinn þegar hún tók sig upp og flutti úr landi. Afskaplega elskuleg kona en ósköp döpur yfir ástandinu í landinu sínu.

Ferðin reyndist taka 15-20 mínútur svo að þetta hlýtur að vera dálítið meira en 2 mílur. Á tímabili var ég orðinn alveg viss um að ég hefði farið fram hjá safninu.

Ég ætla ekki að reyna að lýsa þessu safni. Þeir byggðu það á fjallstoppi (eiginlega er þetta frekar hæð en fjall - þeir kalla það samt fjall). Maður fer í lítilli lest upp á fjallið. Paul Getty skyldi eftir 700 milljónir dollara í sjóði fyrir safnið og ekkert var til sparað þegar það var byggt. Það var opnað árið 1997 svo að það er ekki von að við höfum vitað af því þegar við vorum á ferðinni hér árið 1991. Þarna er verulega afslappandi að rölta um, bæði innan og utan dyra og skoða listaverkin. Alls staðar hægt að setjast og horfa í kringum sig. Arkitektinn Richard Meier hannaði safnið.

Þarna er líka fallegur garður sem listamaðurinn Robert Irwin hannaði. Sá vissi ekkert um plöntur en hannaði garðinn eftir litunum og formunum sem hann vildi hafa. Fékk svo garðyrkjumann til að finna plöntur sem pössuðu. Einhvern tíma, nokkru eftir að safnið var opnað, mun Robert þessi hafa komið og orðið mjög starsýnt á eitt tréð. "Þetta er fallegt tré!" sagði hann, uppnuminn af hrifningu. "Sjáið þið formin?" sagði hann og sneri sér að fylgdarliði sínu. "En, hr. Irwin," sagði garðyrkjumaðurinn hikandi, "þetta tré er steindautt. Við erum að fara að skipta því út."

Jæja, klukkan er að verða sex og Ásta var að koma á hótelið af ráðstefnunni. Allt gekk vel hjá henni. Hún var fundarstjóri hluta dagsins og heldur fyrirlesturinn sinn á morgun.

Lifið heil!

Bandaríkin

11. maí 2010
Brottför frá Keflavík seinkaði um klukkustund vegna þess að vélin frá Heathrow þurfti að bíða í 2 tíma eftir flugtaksleyfi, full af farþegum. Algjör ringulreið á Heathrow sagði ungi maðurinn sem sat við hliðina á mér í vélinni. En klukkustundar seinkun? Vel sloppið miðað við flesta þessa dagana.

Reyndum að sofa í vélinni en gátum ekki. Við vorum nefnilega í sætum sem ekki var hægt að halla þar sem þau voru milli neyðarútganga.

Scott tók á móti okkur á flugvellinum. Með honum í för var móðir hans, 86 ára. Sú var ekki dauf í dálkinn! Full af fjöri og talaði mikið. Á erfitt með gang vegna þess að liðagigt leggst illa á ökklana á henni en annars er búið að skipta um alla liði frá öxlum niður í hné. Kvartar samt aldrei – þykist aldrei hafa fundið til alla ævi. Dæmi: Eftir að faðir Scotts dó voru hann og mamma hans að taka til í lyfjaskápnum hans. Móðirin tók upp pillubox og spurði Scott hvað þetta væri.

„Þetta er verkjalyf,“ svaraði hann. „Þú ættir kannski að geyma þetta ef þú færð höfuðverk eða eitthvað.“

„Hvernig veit ég hvort ég er með höfuðverk?“ spurði hún!

Við ókum sem leið lá heim til Chris og Cathy, bróður og mágkonu Scotts. Chris er flugstjóri hjá Alaskan Airlines og var að heiman. Cathy er mjög elskuleg kona og tók afar vel á móti okkur. Hún er sjúkranuddari. Þau búa í húsi sem mér taldist til að væri ca 350 fm að grunnfleti – á tveim hæðum. Samt mjög heimilislegt og ótrúlegt útsýni yfir sjóinn og þar fá þau kvöldsólina. Misstum samt af sólsetrinu.

Anne var ekki með því að hún þurfti að vinna morguninn eftir.

Scott eldaði ítalska máltíð, létta og bragðgóða – alveg frábær eftir langt flug og þegar líkamsklukkan er milli 3 og 4 að nóttu.

Ræddum um ferðatilhögun þegar við kæmum til baka frá Los Angeles. Cathy vildi endilega lána okkur bíl sonar síns sem er að læra japönsku í Japan (hann er reyndar verkfræðingur sem missti vinnuna í fyrra en þar sem hann hafði tekið japönsku með námi í skóla ákvað hann að breyta alveg um svið). Móðir Scotts bauðst til að taka á móti okkur á flugvellinum og keyra okkur til Scotts og Anne. Og loks hafði Scott í huga að sækja okkur á flugvöllinn og eyða kvöldinu í Seattle áður en við færum heim til þeirra í Mt. Vernon. Allir af vilja gerðir – hvílík gestrisni!
Móðirin ók svo sjálf heim til sín þrátt fyrir að hafa drukkið sinn skerf af rauðvíni með matnum!

12. maí 2010
Við Ásta vöknuðum nokkrum sinnum um nóttina og kl. 4:45 ákváðum við að við gætum ekki sofið lengur. Fórum niður og helltum okkur upp á kaffi. Chris og Scott komu svo rétt fyrir kl. 7.
Við vorum ekki með ákveðin sæti í vélinni og því var ákveðið að reyna að panta sæti á netinu. Þá kom í ljós að það kostaði 29 dollara á mann. Ákváðum að spara og létum bara raða okkur í sæti um leið og við fórum í vélina. Fengum ágætis sæti með góðu rými fyrir lappirnar.

Tókum leigubíl á hótelið – 10 mínútna ferð. Gekk ill að fá bílstjórann til að filla út kvittun. Hann vildi bara láta okkur fá óútfyllta kvittun því að „allir vilja hafa það svoleiðis,“ sagði hann. Tókst samt að lokum að fá hann til að gera það, því að Ásta fær kostnaðinn endurgreiddan frá stjórnendum ráðstefnunnar.

Hér er rosalega þægilegur hiti á daginn, rúmlega 20°C og tæplega það á kvöldin. Fengum okkur göngutúr um nágrennið eftir að við vorum búin að koma okkur fyrir á hótelinu. Hótelið er lítið og frekar ódýrt og ótrúlega ljótt og næstum sóðalegt að sjá en herbergið er bæði rúmgott og hreint.
Kl. 19 var kvöldverður fyrir stjórnendur ráðstefnunnar á veitingastað í 5 mínútna göngufjarlægð frá hótelinu og ég fékk að fljóta með. Var víst eini makinn þar. Ætli við höfum ekki verið svona 14-16 manns þarna. Sat við hliðina á kínverskri konu sem á sér merkilega fjölskyldusögu. Afi hennar var frá mjög afskekktu þorpi í Yunnan í Suður-Kína. Hann vildi mennta son sinn og sendi hann því í skóla í borg í einhverri fjarlægð. Hann flæktist í styrjöldina þegar kommúnistar náðu völdum og flúði til Tævan eins og svo margir Kínverkjar. Þar fæddist hún og ólst upp. Þaðan fluttist fjölskyldan til Bandaríkjanna og hér gekk hún í háskóla. Og nú er hún bandarískur ríkisborgari og starfar sem einn of fremstu sameindalíffræðingunum við UCLA. Hana langar til að heimsækja þorpið sem afi hennar kom frá. Til að komast þangað þarf hún að fljúga til einhverrar borgar í Suður-Kína. Þaðan er heils dags akstur til þorpsins þar sem vegurinn endar. Þaðan þarf að ganga upp í fjallið þar sem „hennar“ þorp er – 8 tíma gangur. Á þessu svæði eru mjög afskekkt svæði sem eru einangruð frá hvert öðru vegna fjallgarðanna og þar eru víst mörg tungumál sem eru að hverfa, auk kínverskra mállýska sem aðrir Kínverjar eiga mjög erfitt með að skilja.

Hinum megin við mig sat Hollendingur sem kemur tvisvar á ári til Íslands vegna samvinnu við Hjartavernd. Hann er búinn að ferðast mikið um Ísland en á Vestfjarðakjálkann eftir.

13. maí 2010
Náðum að sofa næstum því til kl. 7 í morgun! Fengum okkur „continental breakfast“ á hótelinu. Ráðstefnan hófst kl. 9:30 og ég rölti með Ástu að ráðstefnustaðnum sem er á háskólasvæði UCLA í s.k. Ronald Reagan Medical Center. Aðeins rúmlega 10 mínútna gangur. Kom svo aftur á hótelið til að skrifa þessar línur.