Monday, February 27, 2006

Skolinn byrjadur

Komum hingad til Monteverde i gaer, sunnudag, um 6-leytid. Logdum af stad fra San Jose kl. 11:00 um morguninnn. Vorum fyrst flutt til Heridia, um 1/2 klst akstur nordur af San Jose. Thar hittum vid fleiri sem voru ad fara i skolann her i Monteverde. Logdum af stad thadan kl. 13:00 og stoppudum einu sinni a leidinni. Sidasta klukkutimann var vegurinn vondur, svona alika og a Sprengisandsleid, hardur og gryttur. Bilstjorinn okkar var katur og skemmtilegur en taladi naestum enga ensku. Thegar hingad var komid keyrdi hann hvern og einn nemanda heim til sinnar fjolskyldu thvi flestir eru einir a ferd og bua hja fjolskyldum i grennd vid skolann. Vid Asta og bandarisk hjon (sem eru afskaplega litid hrifin af Bush) vorum sidust ut enda buum vid a skolalodinni i splunkunyjum ibudum sem mikid hefur verid lagt i. Ibudin okkar er a tveim haedum med stofu, setustofu og eldhusi i einu rymi nidri en uppi eru tvo svefnherbergi. Vid hofum annad en i hinu er afskaplega thaegilegur hommi fra San Diego. Hann gekk med okkur og bandarisku hjonunum ad syna okkur hvar vid gaetum fundid okkur matarbita en thar sem var buid ad loka matvoruverslunum a sunnudagskvoldi baud hann okkur ad nota sinn morgunmat (vid erum med sitt hvorn isskapinn). Baerinn er mjog dreifdur og gengur einn vegur eftir honum endilongum. Hann er omalbikadur og likist helst vegunum eins og their voru i Kopavogi i gamla daga eftir storrigningar. Thad er reyndar agaett thvi ad thad eru engar gangstettar og engin gotulysing, svo ad bilarnar thurfa ad keyra haegt.

Vid vorum svo maett i skolann kl. 7:10 i morgun til ad fara i stoduprof. Vid Asta lentum i sama bekk, med bandarisku konunni sem fyrr er nefnd og 18 ara stelpu fra sama landi. Thetta var verulega gaman, forum i gegnum oreglulegar sagnir og spjolludum mikid - god reynsla. Kl. 12:00 var skolinn buinn og vid fengum verkefni til ad vinna fyrir morgundaginn - heldur meira en eg hafdi buist vid. Annars kom thad okkur a ovart hversu har medalaldurinn er herna og vid erum ekki aldursforsetar!!!!

Skruppum svo "i baeinn" til ad fa okkur matarbita og rakumst tha a thetta Internetkaffi en thvi midur er ekki Internet tenging i skolanum. Her mun vera thradlaus nettenging lika svo ad liklega kem eg naest med mina tolvu med mer og get tha sett inn einhverjar myndir hedan.

Her er vedrid dalitid islenskt, hvasst og oft skyjad eda suld, hitastigid a bilinu 16-20 gradur a daginn.

Sunday, February 26, 2006

Brottför frá San José


Var að uppgötva að ég gat komist á netið þráðlaust hérna á hótelinu og því get ég núna notað íslenska stafi.

Vöknuðum kl. 5:30 að vanda og fengum okkur morgunmatinn kl. 7:00. Morgunmaturinn hérna eru aðallega steikt hrísgrjón með svörtum baunum og steiktum banönum (plantains) ásamt ommelettu. Með þessu er drukkinn safi úr kreistum ávöxtum af ýmsum toga og gott, sterkt kaffi.

Í gærkvöldi var ég að spjalla við Breta sem tjáði mér að hann þekkti nokkra Íslendinga sem vinna hjá CCP en hann er sjálfur dýrafræðingur sem núna vinnur við að forrita tölvuleiki fyrir eitthvert stórt, bandarískt-breskt fyrirtæki í London. Það er svo eftirsótt að vinna hjá þessu fyrirtæki að fólk byrjar á því að vinna kauplaust í 6 mánuði (Internship) til þess að eiga möguleika á ráðningu! Geri þó ráð fyrir að slíkt fólk sé ekki með B.S. í rafmagns- og tölvunarverkfræði og síðan M.S. í upplýsingatækni frá ITU (hmmm, Páll Ragnar)!

Eftir tæpa tvo tíma förum við af stað í langferðabíl til Monteverde sem er u.þ.b. 4 tíma ferð. Okkur er sagt að það sé ansi kalt í regnskógunum um þessar mundir og eins gott að vera vel klæddur!

Myndin sem fylgir er úr hverfinu okkar.

Saturday, February 25, 2006

Myndir


Hér eru fyrstu myndirnar úr ferdinni. Thetta er hótelid sem vid erum í á efri myndinni en á nedri myndinni er horft nidur eftir gotunni og hótelid er á vinstri hond. Ásta hafdi áhyggjur af thví ad ég setti thessar myndir inn vegna thess ad lesendur myndu halda ad vid vaerum í algjoru "slummi" en svo er alls ekki. Svona líta bara hverfin út sem eru í kringum midborgina, a.m.k. theim megin sem vid búum. Hótelid er afar "huggulegt" innandyra.

Fórum nidur í bae ádan og fengum okkur frábaerar steikur. Erum thví vel á okkur komin og tilbúin til ad halda áfram í fyrramálid nordur á bóginn upp í regnskógana í fjollunum. Vid verdum á ferdinni mestallan morgundaginn og fyrirséd ad vid munum ekki baeta neinu inn á bloggsíduna fyrr en í fyrsta lagi á mánudag. Engir hafa ritad "comment" enn thá svo ad vid vitum í raun ekki hvort nokkur madur les thetta! Ef svo er ekki getur thetta bara ordid nokkurs konar dagbók fyrir okkur.

Laugardagur í San José

Thá er annar dagurinn í Costa Rica hálfnadur. Ég sé ad ég haf talad mikid um svefn í sídasta pósti en thad stafar audvitad af thví ad ég skrifadi hann nýkominn hingad og svefnlítill.

Ásta lagdist í rannsóknarvinnu og uppgotvadi ad megnasta fúkkalyktin í herberginu okkar er af rúmteppunum sem eru audvitad ekki thvegin eins reglulega og rúmfotin. Rúmteppin voru thví daemd í útlegd ofan í skúffu. Samt er enn thá nokkur fúkkalykt í herberginu sem vid losnum ekki vid, en vid munum láta okkur hafa hana.

Vid erum búin ad skoda midbaeinn toluvert og í rauninni er alveg timabaert ad fara ad koma sér hédan úr hofudstadnum. Satt ad segja átti ég von á ad San José vaeri odru vísi - hélt ad borgin vaeri bara eins og allar adrar stórar borgir en svo er ekki. San José hefur sinn eigin karakter. Lítid um háhýsi í midbaenum. Mikill hávadi, allir ad reyna ad selja eitthvad en thó ber mest á lotterí solufólki. Adalgatan er gongugata sem betur fer thvi ad thad er nanast olift á odrum gotum midbaejarins fyrir straetisvognum og trukkum sem daela utblaestrinum yfir gangandi fólk.

Í gaer komumst vid ekki hjá thví ad fá okkur lúr um eftirmiddaginn, svona 1 1/2 klst. Sídan út ad borda á ítalskan stad í 5 mínútna fjarlaegd frá hótelinu (sem er 15 mínútna gang frá midbaenum). Vorum snemma á ferdinni, langfyrstu gestirnir, thví ad fólk bordar frekar seint hérna. Borgudum 3500 kr samanlagt fyrir máltídina, vín med matnum og drykk fyrir matinn. Komum okkur svo aftur upp á hótelid og sátum úti í gardi í ca hálftíma ádur en vid gáfumst upp og fórum ad sofa kl. 21:30!!! Voknudum svo eldhress kl. 5:30 og stefnum ad thví ad halda okkur vid ad vakna um 6 leytid á morgnana (sólarupprás) medan á ferdinni stendur.

Í morgun vorum vid lengi í morgunmat og raeddum vid Bandaríkjamann sem er búinn ad kaupa sér hús sydst á strondinni Karabíahafsmegin. Endum sennilega med thví ad heimsaekja hann thangad. Reyndar er mikid um ad Kanar kaupi sér hús hérna til ad búa hér í ellinni en thessi madur er odru vísi. Hann er á okkar aldri, er trésmidur sem hefur greinilega gert thad gott í uppbyggingunni í nordurhluta New Mexico, thadan sem hann er, thótt hann segdist "bara vera smidur". Thetta er einn af thessum Bandaríkjamonnum sem hefur miklar áhyggjur af stefnu núverandi forseta. Hann er líka óvenjulegur ad thví leyti ad hann er grídarlega fródur um sagnfraedi sem er hans áhugamál. Madur kom ekki ad tómum kofanum hjá honum vardandi sogu Evrópu eda Midausturlanda. Medan vid spjolludum vid hann skemmtum vid okkur vid ad fylgjast med fuglum í gardinum, adallega einum eldraudum sporfugli og odrum gráum med blágraena vaengi. Vonandi gódur forsmekkur ad thví sem vid eigum eftir ad sjá í sveitinni. Annars heldur lítill kólibrífugl sig gjarnan á grein fyrir utan herbergid okkar og skreppur odru hverju til ad fá sér blómsykur úr bleikum blómum á runna vid gluggann.

Sídan fórum vid í baeinn í blídskaparvedri, ca 24ºC, fullkomid hitastig, orlítil gola og einstaka vindhvida. Ásta fékk sér góda strigaskó og vid keyptum gjof sem vid aetlum ad faera "mommu" hennar Vanessu, stúlkunnar sem vid styrkjum hér. Vid aetlum ad koma thar vid rétt ádur en vid holdum heim til Íslands.

Spaenskan er smám saman ad rifjast upp. Reynum ad tala eingongu spaensku thótt mjog margir hér tali ensku. Fólk er venjulega mjog duglegt ad hjálpa okkur ad finna réttu ordin.

Stefni ad thvi ad setja einhverjar myndir hérna inn ádur en langt um lídur.

Friday, February 24, 2006

Komin til Costa Rica

Lentum í Costa Rica kl. 7:30 ad morgni ad stadartíma. Thad er kl. 13:30 ad islenskum tima. Thá var lidin 31 klst sidan vid forum ut ur dyrunum heima i ferdina. Ferding gekk árekstra-, aevintýra- og snurdulaust. Vid lentum sem se i London kl 12 á fimmtudegi, fórum thadan upp úr kl. 15 og vorum rumar 10 klst á leidinni til Los Angeles - vorum naestum klst á undan áaetlun thangad. Gátum ekkert sofid á leidinni og vorum thó ad reyna thví ad vid sváfum ekkert mjog lengi nóttina fyrir brottfor. Allt gekk vel vid komuna til Los Angeles og starfsfólk í vegabréfaeftirliti og tolli allt hid elskulegasta en vid hofdum óttast ad thar vaeri allt litad af tortryggni. Urdum ad bída í Los Angeles í taepar 6 klst. Á Terminal 4 thar sem vid bidum eru stólarnir sérstaklega hannadir til thess ad enginn geti nýtt sér tvo samhlida stóla til hvíldar. Reyndum ad sofna thar sitjandi og nádum ad dotta nokkrum sinnum.
Vélin til San José var stútfull en vid nádum samt ad sofna og hofum sennilega nád 4 tíma svefni hvort sem gerdi gaefumuninn. Hér er ca 26 stiga hiti og rakt, skýjad og skúrir í naerliggjandi fjollum.
Beint a hotelid í leigubíl. Ódýrt, fast verd, $13 fyrir naerri hálftíma akstur. Vorum svo snemma á ferdinni ad herbergid var ekki tilbúid. Fengum morgunverdarmida sem voru vel thegnir - their kunna greinilega ad búa til gott kaffi hérna. Sennilega er thetta hótel í ódýrari kantinum og fúkkalyktin á herberginu er ansi ágeng! Skrapp sem sé á netid medan vid bídum eftir ad fá herbergid afhent. Svo verdur stefnan tekin á sturtu ádur en haldid verdur í baeinn.
Símarnir okkar virka ekki hérna. Greinilega hafa engir samningar verid gerdir milli Símans og símafyrirtaekja hér! Munum athuga med ad kaupa kort i símana okkar.
Reyni svo ad halda thessu bloggi gangandi nokkurn veginn daglega.

Monday, February 20, 2006

Að halda sér við

Þetta er svona rétt til að ég gleymi ekki hvernig á að fara að þessu.

Wednesday, February 15, 2006


Bara að prófa að setja inn mynd!

Klukkan!

Ég sé að klukkan er eitthvað skrítin. Síðasta bloggið á að hafa verið skrifað kl. 4:10 að morgni en í reynd var klukkan 12:10 hér á Íslandi. Það þarf sem sé að bæta við 8 klukkustundum til að sjá hvað klukkan hefur verið á Íslandi þegar bloggið var skrifað. Þetta hlýtur að vera miðað við Kaliforníu!

Orðinn bloggari!

Jæja, allt getur nú skeð. Bara orðinn bloggari, hvorki meira né minna! En ætlunin er sem sé að leyfa ættingjum að fylgjast með hvað kann að drífa á daga okkar Ástu í Costa Rica.